Fimmti verzlingur vikunnar

Maneesh on the beat, shabang! Sáuði þetta? Líklega, því að Íþró vikan fór ekki framhjá neinum kæru lesendur. Hún byrjaði með beep-testi fyrir alla gingera skólans (það fólk hefur ekki sál og á að refsa) og GEMIL reddaði fólki síðbúnum summerbody með bekkpressukeppni #BetterLateThanNever. Síðan var hent í blindbox á þriðjudag og ég get sagt ykkur að það var í stærsta kantinum í ár. Það voru Gísli Georgs og Freyr Arons sem unnu gegn Birki Sólnes og Arnari Rey (þetta eru með vígalegustu mönnum landsins bara til að það sé á hreinu). Já og Gummi Ben var líka að lýsa þessu haha. Miðvikudagurinn var ekkert minni því að eftir að fólk hafði barist fyrir lífi sínu í barre með Dóru Júlíu á marmz fór Verzló og jarðaði MS í körfubolta. Það voru síðan kennarar skólans sem niðurlægðu stjórnina í fótbolta á fimmtudag og Kári Jóns windmill-dunkaði yfir Garp Birgis á marmaranum. #Fuuuuck. Stærsti viðburður vikunnar var samt auðvitað golfmót Íþró sem fór fram núna á fös en það veit enginn hvað gerðist þar og öll vídeó af mótinu eru AI. ÞAU ERU ÖLL AI!
Ég segi svona. En nú kynni ég fimmta Verzling vikunnar. Hann er stór, hann er óður og hann er rosalega góð... hjartaður! Hann er Freyr Arons í 3. H! Fyrir ykkur sem ekki vita er Freytato ekki bara gaur, hann er svaka gaur haha. Hann byrjaði á því að leiða Team Stulla til sigurs í blindbox keppninni og var valinn maður leiksins. Margir hefðu tekið við þeim mikla heiðri og sagt það gott en ekki Freaky. Hann fór og skoraði 13 mörk í einum handboltaleik (það er viðbjóðslega mikið) og síðan valinn í æfingahóp með landsliðinu. Það er þessi seigla, gott fólk, þessi seigla sem gerir Freyroncé að Verzlingi Vikunnar og að íþróttaálfinum sem hann er í dag. Til hamingju Ísland og til hamingju þú.
Gang Gang,
- Óli, ritstjóri Verzlings Vikunnar











